Frá 1941
Almenna Málflutningsstofan — AM Praxis, byggir á gömlum meið og á rætur að rekja aftur til ársins 1941.
Stofan hefur í áratugi þjónað einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum stofnunum með fagmennsku og hollustu. Við erum stolt af þeirri löngu sögu og reynslu sem við höfum safnað.
Saga stofunnar
1941
Baldvin Jónsson hæstaréttarlögmaður hóf rekstur lögmannsstofu.
1983
Reynir Karlsson gekk til liðs við Baldvin og störfuðu þeir samhliða undir merkjum lögmannsstofu Baldvins og Reynis.
1992
Stofan sameinaðist Almennu málflutningsstofunni sem rekin var af feðgunum Jónatani Sveinssyni og Hróbjarti Jónatanssyni.
Í dag
Stofan er rekin af Reyni Karlssyni hæstaréttarlögmanni, Helgu Reynisdóttur lögmanni og Halldóri Þ. Þorsteinssyni lögmanni undir nafninu AM Praxis.

